Mikilvægar upplýsingar

Upplifun í heimi eldfjallanna. Vinsamlegast lestu þetta fyrir sýninguna.

Veldu tungumál

01Við hverju
má búast

  • Í sýningunni eru snöggar hreyfingar, hávær hljóð, blikkandi ljós og hitaáhrif, auk stórfenglegra mynda af eldgosum.
  • Enginn texti er á aðalsýningunni.
  • Njóttu gagnvirku sýningarinnar, sem er textuð.

02Öryggis-
upplýsingar

  • Láttu starfsfólk vita ef þú ert barnshafandi, ert með slæma bakverki eða hjartasjúkdóm, eða finnur fyrir mikilli ferðaveiki.
  • Öryggismyndbandið og öryggisbeltin eru skylda.
  • Ef þér líður illa á einhverjum tímapunkti í sýningunni skaltu rétta upp hendur svo starfsfólkið geti stöðvað hreyfisætin ef þörf krefur.

03Hús-
reglur

  • Ekki má borða eða drekka í salnum og ekki má taka myndir eða myndbönd á meðan sýningin stendur yfir.
  • Volcano Express ber ekki ábyrgð á tjóni á persónulegum munum (svo sem símum, myndavélum eða fatnaði) sem hreyfisætin, vatnsáhrif eða hitaáhrif í 4D-upplifuninni kunna að valda.
  • Gestir bera sjálfir ábyrgð á að ganga frá lausum munum áður en sýningin hefst.
  • Fatahengi, hillur og skápar eru gestum að kostnaðarlausu fyrir framan salinn.

04Takk fyrir
komuna

  • Gefðu þér góðan tíma í forsýningarrýminu. Þú ert velkomin(n) þangað aftur eftir sýninguna.
  • Deildu upplifun þinni á Google og hjálpaðu öðrum að finna okkur.
Skrifaðu umsögn á Google